“Hvað er svona merkilegt við það” vann Skjaldborg
Heimildamynd Höllu Kristínar Einarsdóttur „Hvað er svona merkilegt við það?“ hlaut Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar sem lauk í gærkvöldi. Myndin er framhald annarrar myndar Höllu Kristínar, Konur í rauðum sokkum, sem einnig hlaut sömu verðlaun 2009. Hrafnhildur Gunnarsdóttir framleiddi myndina fyrir Krumma Films.
Myndin fjallar um kvennaframboðin sem birtust á stjórnmálasviðinu á níunda áratug síðustu aldar í kjölfar hinna róttæku kvennabaráttu áratugarins á undan.