Svona fólk. Heimildamynd og þáttaröð eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur
Fyrri hluti heimildakvikmyndarinnar er frumsýnd í Bíó Paradís 27. nóvember.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir er um þessar mundir að leggja síðustu hönd á heimildakvikmynd og 5 þætti fyrir sjónvarp sem nefnast Svona fólk.
Fyrri hluti Svona fólks fyrir kvikmyndahús verður frumsýnd í Bíó Paradís 27. nóvember og síðar í vetur á RÚV. Þættirnir eru fimm en fyrrihluti heimildamyndarinnar er um 90 mínútur.
Svona fólk fjallar um líf og reynslu homma og lesbía á Íslandi og spannar frásögnin fjóra áratugi, allt frá því að fyrsti vísir að hreyfingu þeirra kviknaði um miðjan áttunda áratuginn og þar til mikilvægar réttarbætur til handa samkynhneigðum voru í höfn á nýrri öld.
Í fyrsta þættinum er sjónum beint að þöggun, þögn og niðurlægingu fyrri ára, síðan segir frá fyrstu árum Samtakanna ́78 og baráttu frumherjanna, þá er fjallað um alnæmi og þá þjáningu sem sjúkdómurinn kallaði yfir samfélag samkynhneigðra og í fjórða þættinum segir frá baráttunni fyrir réttlátri löggjöf, einkum á sviði fjölskylduréttar. Loks eru þræðir dregnir saman í fimmta og lokaþættinum og litið yfir sviðið.
Öðrum þræði er hér rakin saga kynferðispólitískrar hreyfingar, en umfram allt miðlar kvikmynd Hrafnhildar reynslu hvunndagsfólks sem tókst á við ríkjandi kerfi, fordóma og skilningsleysi, og lagði margt í sölurnar í von um að fá að lifa í friði og sátt við eigin þjóð án þess að fara með veggjum og leyna dýrmætum tilfinningum. Kvikmyndin er byggð á miklu og fjölbreyttu safni heimilda og um fjörutíu heimildarmenn tjá sig í þættinum um atburði þessara ára.
Hrafnhildur hóf að safna heimildum 1992 eða fyrir hartnær 26 árum en markmiðið með þessu verki er öðrum þræði að varðveita sögu um einstæða mannréttindabaráttu í lifandi mynd því að fljótt fennir i sporin. Hrafnhildur vildi líka minna á að hægt er að vinna bug á fordómum og ofsóknum með skipulegum og uppbyggilegum hætti. Það sýndi sig að það borgaði sig að berjast þótt sá hópur sem lagði af stað í þessa baráttu grunaði síst upp úr 1980 að þau myndu upplifa þjóðfélagsbreytingar sem jöðruðu við byltingu og breyta ásýnd Íslands í hópi þjóðanna.
Frekari upplýsingar veitir Halla Kristín Einarsdóttir, hallaein@gmail.com og
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, hrabba@krummafilms.com, 821-1110