Lifandi í limbó eftir Ericu Marcus, Tinu Naccache og Hrafnhildi Gunnarsdóttur
Lifandi í Limbó (Alive in Limbo) er verðlaunuð heimildamynd sem þær Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Tina Naccache og Erica Marcus gerðu á árunum 1993 til 2004. Í myndinni er fylgst með fjórum palestínskum flóttamönnum og líbönskum dreng í Shatila flóttamannabúðunum í Líbanon um tíu ára skeið.
Árið 1993 fagnaði fólk um allan heim Oslóarfriðarsamkomulaginu milli Ísraelsmanna og Palestínumanna sem vonir voru bundnar við að markaði upphaf nýrri og betri tíma fyrir ungt fólk í Austurlöndum nær.
Palestínsku börnin í myndinni, þau Wasim, Nisreen, Mostafa og Manal, lifðu, léku sér og létu sig dreyma í Shatilabúðunum í Beirút. Þau eru af þriðju kynslóð palestínskra flóttamanna sem elst upp í Líbanon síðan 1948 þegar fjölskyldur þeirra voru hraktar burt af heimilum sínum í Palestínu.
Líbanski drengurinn, Hussein, bjó rétt utan við hernám Ísraelsmanna í Suður-Líbanon og hann segir frá því hversu erfitt var að sækja skóla vegna sprengjuárása Ísraelsmanna á heimkynni hans. Hann segist gjarnan vilja eiga heima þar sem engar sprengjur falla.
Árin 1999, 2000 og 2002 leituðu kvikmyndagerðarkonurnar þetta unga fólk aftur uppi þegar það var að nálgast fullorðinsaldur. Það var enn í Líbanon. Palestínumennirnir eygja enn von um að komast heim því að ályktun Sameinuðu þjóðanna númer 194 tryggir þeim rétt til að snúa aftur til heimalands síns. Í Suður-Líbanon sýnir Hussein hvaða efnahagslegu áhrif meira en tveggja áratuga herseta Ísraelsmanna hafði á svæðið.
Unga fólkið í myndinni talar um kærustur, kærasta og framtíðardrauma sína eins og krakkar gera alls staðar. En sagan og pólitíkin gera þeim erfitt fyrir og óvíst er hvort draumarnir rætast.
Lengd: 57 mín
Format: Digtal Betacam
Framleiðandi : Erica Marcus
Leikstjórn: Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Tina Naccache og Erica Marcus
Kvikmyndataka: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Klipping: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Frumsýnd: 2005
Myndin hefur hlotið ýmsar viðurkenningar m.a. sérstaka viðurkenningu í flokki mannréttindaverðlauna á Locarno kvikmyndahátíðinni í Sviss í ágúst 2005. Tvær myndir hlutu þessa viðurkenningu.