Heimildamynd

Bóndinn og verksmiðjan

Bóndinn og verksmiðjan rekur sögu veikinda hesta í eigu bóndans á Kúludalsá í Hvalfirði af meintri flúormengun og baráttu Ragnheiðar Þorgrímsdóttur, eiganda þeirra, við kerfið í leit að réttlæti.

 

Viltu styðja við verkefnið?

Kviksjóður 480524-0200 tekur við framlögum á reikning 0515-26-012184 merktum Bóndinn og verksmiðjan. Vinsamlegast takið fram ef ekki er óskað eftir að vera á lista yfir þá sem hafa fjármagnað myndina með því að segja EKKI í athugasemdir.

 

Kviksjóður er nýstofnað félag sem styður óhagnaðardrifna (non-profit) starfsemi sem tengist kvikmyndagerð á Íslandi. T.d. gerð heimildakvikmynda og myndgerðar á vegum einstaklinga, stofnana og félagasamtaka sem eru óhagnaðardrifin en þurfa að afla utanaðkomandi fjár. Yfirlýstur tilgangur félagsins er að styðja við margbreytileika samfélagsins, mannréttindi og þróun lýðræðis.

Ísl. kr 1.000.- Safnað af 6.450.000,- kr. marki
1 Stuðningsaðili
0% Safnað

Bóndinn og verksmiðjan verður frumsýnd á Skjaldborg á Patreksfirði um hvítasunnuna.

Nánar um verkefnið:

Hross á bæ í Hvalfirði veikjast eitt af öðru af völdum meintrar flúormengunar frá álverksmiðju í næsta nágrenni. Bóndanum á bænum mætir skilnings- og afskiptaleysi stjórnvalda og er sjálf sögð bera ábyrgðina. Bóndinn leitar allra leiða til að komast að hinu sanna í málinu en við ofurefli er að etja.

 

BÓNDINN OG VERKSMIÐJAN hefur tekið 11 ár í framleiðslu, 2014–2025. Helsta ástæða þess var sú að kvikmyndagerðarmennirnir biðu átekta þar til fram kæmu sannanir þess efnis að veikindi hestanna væru ekki einungis að hrjá þennan eina bónda á þessum eina bæ sem yfirvöld vísuðu til þegar þau vörpuðu allri ábyrgð á bóndann einan og kenndu henni um veikindin. Svæsnum orðrómi um að hún væri ekki hæf til að hugsa um dýrin var komið á kreik, ekki síst fyrir léleg vinnubrögð MAST, og fáir studdu hana í nærsveitum þar sem fólk vildi forðast að þessi umræða kæmist í hámæli.

 

Það var því ekki fyrr en árið 2023 að annar bóndi á öðrum bæ var tilbúinn að tala um veikindi hesta sinna og hægt var að ljúka gerð myndarinnar. Á sama tíma birtist rannsókn og meistararitgerð frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri sem sýndi óyggjandi fram á að grasbítar og þá einkum hestar í námunda við Grundartanga væru með fjórfalt meira flúor í beinum en hestar á öðrum svæðum á landinu. Sú rannsókn rennir frekari stoðum undir þann grun að flúor sé um að kenna hvað varðar þessi veikindi.

 

Verkefnið hefur farið langt fram úr fjárhagsáætlun, einkum vegna þessara tafa. Við höfum hlotið stuðning Almannaheillafélags sem heitir Kviksjóður og þeir sem vilja styðja framleiðslu myndarinnar hljóta skattafslátt á móti. Við þurfum að loka u.þ.b 6.403.000 kr. gati í fjárhagsáætlun til að geta greitt upp allar skuldir verkefnisins.

Kvikmynd eftir Barða Guðmundsson og Hrafnhildi Gunnarsdóttur
Byggt á hugmynd Barða Guðmundssonar

Framleiðandi: Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Kvikmyndataka: Helgi Felixson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Klipping: Anna Þóra Steinþórsdóttir
Viðtöl og ráðgjöf: Kristinn Hrafnsson
Frumsamin tónlist: Margrét Rán og Bubbi Morthens

Fram koma meðal annars:

  • Ragnheiður Þorgrímsdóttir
  • Sigurður Sigurðarson
  • Cathy Justus
  • Sigurbjörn Hjaltason
  • Ólafur M. Magnússon
  • Jón Sigurðsson
  • Gunnar Gauti Gunnarsson
  • Jakob Kristinsson
  • Einar Jörundsson
  • Helga Arnardóttir
  • Páll Rúnar M. Kristjánsson
  • Einar Sveinbjörnsson
  • Þórarinn Jónsson
  • Ragnar Aðalsteinsson